Skil ágripa

Fyrir hverja?

Allir þeir sem stunda rannsóknir í menntavísindum og á sviðum þeim tengdum geta tekið þátt í Menntakviku. Gerð er sú krafa að efni sem sent er inn sé hluti af markvissri rannsókn eða heilsteyptu þróunarverkefni. Meistaranemar sem hafa lokið eða eru við það að  ljúka námi og doktorsnemar eru hvattir til að kynna sínar rannsóknir. Efni sem kynnt er á Menntakviku er fjölbreytt enda eru fræðasviðin sem unnið er með á Menntavísindasviði fjölmörg.

Fyrirkomulag

Hver og einn þátttakandi getur aðeins verið fyrsti höfundur að einu erindi, fyrsti meðhöfundur að tveimur erindum, annar meðhöfundur að tveimur erindum, þriðji meðhöfundur að tveimur erindum, o.s.frv. Þetta þýðir að hver þátttakandi getur aðeins haldið eitt erindi á ráðstefnunni.

Sama fyrirkomulag gildir um höfunda veggspjalda. Leyfilegt er að vera fyrsti höfundur að einu veggspjaldi, fyrsti meðhöfundur að tveimur veggspjöldum, annar meðhöfundur að tveimur veggspjöldum, þriðji meðhöfundur að tveimur veggspjöldum, osfrv.

Leiðbeinendur þurfa ekki alltaf að vera skráðir sem meðhöfundar erinda/veggspjalda sem byggja á meistaraverkefnum, en þeir skulu alltaf tilgreindir sem leiðbeinendur.

Hver málstofa er 90 mínútur og öllu jafna er gert ráð fyrir fjórum erindum í hverri málstofu. Hver flytjandi fær 20 mínútur til kynningar og umræðu.

Ágrip

Skráningum þarf að fylgja ágrip sem verður að uppfylla ákveðnar kröfur.

Í ágripi skal:
-lýsa tilgangi rannsóknar
-taka fram hvaða aðferðarfræði er notuð við rannsóknina
-greina frá helstu niðurstöðum rannsóknar
-álykta út frá niðurstöðum
Hámarkslengd ágripa er 250 orð.
Ágrip skulu ekki innihalda heimildir.

Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og öll eru velkomin.