Senda inn ágrip

Yfirskrift Menntakviku í ár er Skapandi leiðir í skóla- og frístundastarfi: Mótum nýja framtíð

Markmið ráðstefnunnar Menntakviku er að kynna og miðla því sem efst er á baugi í menntavísindum og tengdum sviðum hverju sinni. Í ár fögnum við einnig flutningum í Sögu og bjóðum gestum að skoða húsnæðið og þá möguleika sem það hefur upp á að bjóða. Á laugardeginum 4. október verður boðið upp á skapandi smiðjur og kynningar í glæsilegu nýju húsnæði Menntavísindasviðs og gefst dýrmætt tækifæri til samvinnu fræða og fagvettvangs.  

Menntavísindasvið býður öllum sem stunda rannsóknir í menntavísindum og tengdum fagsviðum til þátttöku á ráðstefnunni, sem og öllu starfsfólki annarra stofnana sem rannsaka eða vinna með viðeigandi málefni. 

Eins og undanfarin ár er tekið við ágripum fyrir einstaklingserindi, skipulagðar málstofur og veggspjöld. Í ár bjóðum við upp á nýjung: Skapandi smiðjur og kynningar sem haldnar verða laugardaginn 4. október. Hægt verður að fylgjast með málstofunum á Zoom, málstofurnar verða ekki teknar upp. 

Ráðstefnan er öllum opin og ókeypis.  

Hér með er kallað eftir ágripum fyrir fjölbreytt innlegg á Menntakviku.

– Vinsamlegast lesið leiðbeiningarnar hér að neðan vel áður lengra er haldið –

  • Hámarkslengd ágripa er 250 orð. 
  • Ágrip eiga ekki að innihalda heimildir.
  • Aðeins er leyfilegt að vera fyrsti höfundur að einu erindi, en meðhöfundur að tveimur. Hver þátttakandi getur því aðeins haldið eitt erindi á ráðstefnunni. Þetta gildir um einstaklingserindi, málstofur og veggspjöld, en ekki um skapandi smiðjur og kynningar.
  • Grunnnemum á háskólastigi er ekki heimilt að flytja erindi á ráðstefnunni (B.ED, BS, BA).
  • Ágrip eiga að vera prófarkalesin áður en þeim er skilað inn.
  • Ekki verður hægt að skila ágripum inn með öðrum hætti en í gegnum skráningarform Menntakviku.
  • Leiðbeinendur þurfa ekki alltaf að vera skráðir sem meðhöfundar erinda/veggspjalda sem byggja á meistaraverkefnum, en þeir skulu alltaf tilgreindir sem leiðbeinendur.

Rannsakendur, fagfólk, og sérfræðingar á sviði menntavísinda geta sent inn erindi. Erindið verður síðan flokkað með öðrum svipuðum erindum í málstofur sem haldnar verða fimmtudaginn 2. október og föstudaginn 3. október

Öll innsend ágrip fyrir einstaklingserindi þurfa að innihalda:

  • stutta lýsingu á tilgangi og markmiðum rannsóknar  
  • stutta lýsingu á aðferðum  
  • helstu niðurstöður og ályktanir af þeim auk lærdóms sem draga má af verkefninu.  
  • Ekki skal vísa í heimildir í ágripi.

Fyrirfram ákveðin málstofa með 3-5 erindum þar sem hópur fræðimanna eða sérfræðinga á vettvangi kemur saman með það markmið að fjalla um afmarkað efni eða rannsóknarsvið. Þessar málstofur verða á dagskrá föstudaginn 3. október.

Öll innsend ágrip fyrir skipulagðar málstofur þurfa að innihalda:

  • stutta lýsingu á tilgangi og markmiðum rannsóknar  
  • stutta lýsingu á aðferðum  
  • helstu niðurstöður og ályktanir af þeim auk lærdóms sem draga má af verkefninu.  
  • Ekki skal vísa í heimildir í ágripi.

Við hvetjum alla og sérstaklega doktorsnema að kynna rannsóknir sínar með veggspjöldum. 

Öll innsend ágrip fyrir veggspjöld þurfa að innihalda:

  • stutta lýsingu á tilgangi og markmiðum rannsóknar  
  • stutta lýsingu á aðferðum  
  • helstu niðurstöður og ályktanir af þeim auk lærdóms sem draga má af verkefninu.  
  • Ekki skal vísa í heimildir í ágripi.

Kynning á þróunarverkefnum þar sem gestir ráðstefnunnar fá tækifæri til að taka þátt, prófa nýjungar og fá innsýn í fjölbreytt verkefni á vegum Menntavísindasviðs og vettvangs. Ert þú að vinna að áhugaverðu verkefni sem jafnvel tengist vettvangi? Ertu með nýstárlegar aðferðir eða búnað sem væri gagnlegt fyrir fagaðila að prófa eða fá innsýn í?

Skapandi smiðjur og kynningar verða haldnar laugardaginn 4. október.

Hægt er að velja annað hvort eða bæði:

  • Kynning: Opinn bás þar sem þú kynnir verkefni þitt, hugmynd, efni og átt opið samtal við gesti og gangandi (2-3 klst.).
  • Smiðja: Þú býður þátttakendum kynnast og prófa tól, aðferðir, hugmyndir eða tækni sem nýtist í skóla– og frístundastarfi eða rannsóknum (30-45 mínútur).

Öll innsend ágrip fyrir kynningar/smiðjur þurfa að innihalda:

  • Upplýsingar um ábyrgðaraðila kynningar/smiðju.
  • Titil kynningar/smiðju.
  • Lýsingu á kynningu/smiðju.
  • Upplýsingar um búnað/aðstöðu, s.s. tölvur, rafmagn. internet, skjábúnað.

Í ágripum fyrir smiðjur þarf einnig að tilgreina áætlaðan fjölda þáttakenda í smiðjunni.

Í næsta skrefi skráir þú þig inn í Oxford Abstracts og sendir inn ágrip þaðan: