Nánari upplýsingar / Information

Staðsetning ráðstefnu (Conference venue) – Upplýsingar um Zoom tengla (Information about zoom links) – Upplýsingar fyrir fyrirlesara (information for presenters) – Streymi fyrir opnunarmálstofu (Stream link for the Opening symposium).

Staðsetning ráðstefnu / Conference venue

Ráðstefnan fer fram á Sögu, verðandi húsnæði Menntavísindasviðs.

The conference will be held in Saga, the new home to the School of Education – University of Iceland. See area overview here.

Allt um Zoom tengla fyrir málstofur / Everything you need to know about the Zoom links

Til þess að horfa á fyrirlestra á zoom þarf að fara inn á dagskrá ráðstefnunnar, smella á þá málstofu sem þú vilt fylgjast með og þar á zoom tengillinn að birtast (sjá mynd til vinstri). Ef að þú ert ekki með Zoom uppsett á tölvunni þá eru leiðbeiningar hér.

To be able to watch the presentations online on Zoom, please visit the program below, click on the presentation you would like to attend online and from there you can see the zoom link (see photo to the left). If you do not have a Zoom account installed on your computer, here are some instructions.

Upplýsingar fyrir fyrirlesara / information for presenters

Hver flytjandi hefur takmarkaðan tíma — kynntu þér tímasetningar og verklag ráðstefnunnar.

Every presenter has limited time — please review the session format and timings.

Streymi á opnunarmálstofu

Smelltu hér til að sjá streymi opnunarmálstofu kl 14:30 fimmtudaginn 2. október 2025. 

Skapandi leiðir í skóla- og frístundastarfi: Mótum nýja framtíð 

Ég býð ykkur öll hjartanlega velkomin á Menntakviku, stærstu menntaráðstefnu landsins, þar sem kynntar eru nýjustu rannsóknir á sviði menntavísinda og fjallað um brýn viðfangsefni á sviði náms, kennslu, farsældar, velferðar, samfélags og íþrótta og tómstunda.  Ráðstefnan verður nú haldin í Sögu, nýjum glæsilegum húsakynnum Menntavísindasviðs, og markar því mikilvæg tímamót í sögu Háskólans.  

Markmið Menntakviku hefur frá upphafi verið að skapa vettvang fyrir fræða-og fagfólk í skóla- og frístundastarfi til að miðla þekkingu, hugmyndum og starfsháttum sem skila árangri. Á undanförnum árum hafa orðið miklar samfélagslegar breytingar og tækniþróun sem umbreyta um þessar mundir umgjörð náms og kennslu. Segja má að við stöndum á tímamótum og þurfum að spyrja okkur grundvallarspurninga um hvaða hæfni og þekkingu skipti mestu máli að leggja grunn að. Víða um heim er kallað eftir auknum áherslum á verklega og skapandi starfshætti þar sem leitast er við að tengja saman hug og hönd, efla sjálfstæða og skapandi hugsun, hlúa að samskiptahæfni og samkennd, og síðast en ekki síst, gera öllum kleift að njóta sín og vera virkir þátttakendur í samfélaginu.  

Eitt af lykilmarkmiðum flutnings Menntavísindasviðs í Sögu er að stórbæta náms-og kennsluaðstöðu og efla fjölbreytni í námsumhverfi háskólanema. Það er mikill áfangi að taka í notkun þessi glæsilegu kennslurými og má sérstaklega nefna sértæk námsrými fyrir listgreinar, meðal annars leiklistarstofu, myndlistarstofu, textílrými, smíðastofu og tónlistarstofu. Þá verður hreyfirannsóknastofa fyrir íþrótta- og heilsufræði sem er mikið framfaraskref, sérhönnuð rými fyrir kennslu náttúruvísinda og stærðfræði og sérútbúnar leikstofur fyrir kennslu í menntunarfræðum yngri barna. Nú er það okkar að skrifa nýja sögu og móta kennara og fagfólk framtíðarinnar sem kunna að valdefla og mennta ungu kynslóðina, já og okkur öll.  

Opnunarmálstofa Menntakviku fimmtudaginn 2. október setur mikilvægt viðfangsefni í kastljósið, og ber heitið Kennaramenntun í deiglunni. Þar verður tekist á við eftirfarandi spurningar:  

Er sameiginleg sýn á kennaramenntun hér á landi? Hver er uppskriftin að góðum kennara? Hvernig gengur háskólum sem mennta kennara að brúa bil fræða og fags, að undirbúa nýja kennara undir öll þau fjölbreyttu verkefni sem bíða þeirra í starfi?  

Föstudaginn 3. október verða flutt 235 erindi í 57 málstofum og því er úr nægu að velja. Þá verður einnig hægt að fylgjast með málstofum í beinu streymi á ZOOM.  Ég vek sérstaka athygli á því að á laugardeginum 4. október verður boðið upp á um 30 vinnusmiðjur og kynningar kl. 13-15 í Sögu þar sem gefst dýrmætt tækifæri til samvinnu fræða og fagvettvangs. Ráðstefnan er öllum opin og ókeypis. Verið velkomin á Menntakviku 2025! 

Kolbrún Þ. Pálsdóttir 

Forseti Menntavísindasviðs