English Symposia

How to find symposia in English in the conference program?

There are several options for those who would like to attend presentations in English.

  • All presentations with yellow color in the program are in English (see photo to the right).
  • If you write “ in English“ in the „search program“ field, you will sort together all papers in English.

A list of symposia in English:

  • To be announced 

Skapandi leiðir í skóla- og frístundastarfi: Mótum nýja framtíð 

Ég býð ykkur öll hjartanlega velkomin á Menntakviku, stærstu menntaráðstefnu landsins, þar sem kynntar eru nýjustu rannsóknir á sviði menntavísinda og fjallað um brýn viðfangsefni á sviði náms, kennslu, farsældar, velferðar, samfélags og íþrótta og tómstunda.  Ráðstefnan er nú haldin í fyrsta sinn í Sögu, nýjum glæsilegum húsakynnum Menntavísindasviðs, og markar því mikilvæg tímamót í sögu Háskólans.  

Markmið Menntakviku hefur frá upphafi verið að skapa vettvang fyrir fræða-og fagfólk í skóla- og frístundastarfi til að miðla þekkingu, hugmyndum og starfsháttum sem skila árangri. Á undanförnum árum hafa orðið miklar samfélagslegar breytingar og tækniþróun sem umbreyta um þessar mundir umgjörð náms og kennslu. Segja má að við stöndum á tímamótum og þurfum að spyrja okkur grundvallarspurninga um hvaða hæfni og þekkingu skipti mestu máli að leggja grunn að. Víða um heim er kallað eftir auknum áherslum á verklega og skapandi starfshætti þar sem leitast er við að tengja saman hug og hönd, efla sjálfstæða og skapandi hugsun, hlúa að samskiptahæfni og samkennd, og síðast en ekki síst, gera öllum kleift að njóta sín og vera virkir þátttakendur í samfélaginu.  

Eitt af lykilmarkmiðum flutnings Menntavísindasviðs í Sögu er að stórbæta náms-og kennsluaðstöðu og efla fjölbreytni í námsumhverfi háskólanema. Það er mikill áfangi að taka í notkun þessi glæsilegu kennslurými og má sérstaklega nefna sértæk námsrými fyrir listgreinar, meðal annars leiklistarstofu, myndlistarstofu, textílrými, smíðastofu og tónlistarstofu. Þá verður hreyfirannsóknastofa fyrir íþrótta- og heilsufræði sem er mikið framfaraskref, sérhönnuð rými fyrir kennslu náttúruvísinda og stærðfræði og sérútbúnar leikstofur fyrir kennslu í menntunarfræðum yngri barna. Nú er það okkar að skrifa nýja sögu og móta kennara og fagfólk framtíðarinnar sem kunna að valdefla og mennta ungu kynslóðina, já og okkur öll.  

Opnunarmálstofa Menntakviku fimmtudaginn 2. október setur mikilvægt viðfangsefni í kastljósið, og ber heitið Kennaramenntun í deiglunni. Þar verður tekist á við eftirfarandi spurningar:  

Er sameiginleg sýn á kennaramenntun hér á landi? Hver er uppskriftin að góðum kennara? Hvernig gengur háskólum sem mennta kennara að brúa bil fræða og fags, að undirbúa nýja kennara undir öll þau fjölbreyttu verkefni sem bíða þeirra í starfi?  

Föstudaginn 3. október verða flutt 235 erindi í 57 málstofum og því er úr nægu að velja. Þá verður einnig hægt að fylgjast með málstofum í beinu streymi á ZOOM.  Ég vek sérstaka athygli á því að á laugardeginum 4. október verður boðið upp á um 30 vinnusmiðjur og kynningar kl. 13-15 í Sögu þar sem gefst dýrmætt tækifæri til samvinnu fræða og fagvettvangs. Ráðstefnan er öllum opin og ókeypis. Verið velkomin á Menntakviku 2025! 

Kolbrún Þ. Pálsdóttir 

Forseti Menntavísindasviðs