Dagskrá opnunarmálstofu Menntakviku 2025
Kennaramenntun í deiglunni – Hvar stöndum við?
Menntavísindasvið Háskóla Íslands býður til opnunarviðburðar Menntakviku 2. október kl. 14:30 – 16:00 í Sögu þar sem staða og framtíð kennaramenntunar á Íslandi verður til umræðu. Áhersla verður á grunnskólastigið sem enn er eina skyldubundna námið á Íslandi. Fundurinn verður í streymi.
Dagskrá
14.30 – 14.35 Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs flytur ávarp.
14.35 – 14.50 Sameiginleg sýn á kennaramenntun á Íslandi? Birna Svanbjörnsdóttir, dósent við Háskólann og Akureyri og Berglind Gísladóttir, dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
14.50 – 15:00 Tengsl fræða og starfs í kennaramenntun á Íslandi? Signý Óskarsdóttir, doktorsnemi á Menntavísindasviði.
15:00 – 15:10 Hver er uppskriftin að góðum kennara og hvaða væntingar hafa skólastjórnendur til kennaramenntunar? Ómar Örn Magnússon, skólastjóri Hagaskóla.
15:10 – 15:20 Innsýn og reynsla kennaranema. Gunnar Ásgrímsson, kennaranemi og formaður sviðsráðs MVS
15.20 – 15.50 – Pallborðsumræður – Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ stýrir umræðum.
- Berglind Gísladóttir, dósent við Menntavísindasvið
- Birna M. Svanbjörnsdóttir, dósent við Háskólann á Akureyri
- Signý Óskarsdóttir, doktorsnemi við Menntavísindasvið
- Gunnar Ásgrímsson, kennaranemi og formaður sviðsráðs MVS
- Ómar Örn Magnússon, skólastjóri Hagaskóla
15.50 – 16.00 Steinn Jóhannsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs flytur lokaávarp.
Meðal efnis eru spurningar um hvort til sé sameiginleg sýn á kennaramenntun, hvernig gangi að brúa bil fræða og starfs í náminu, og hvernig kennaramenntun undirbýr nýliða fyrir starf. Fjölbreytt erindi verða flutt og að þeim loknum verða pallborðsumræður.
Markmið fundarins eru að:
- Efla faglega og samfélagslega umræðu um kennaramenntun.
- Kanna hvernig kennaramenntun mætir þörfum skólastarfs í dag.
- Skapa vettvang fyrir samráð milli fræðasamfélags, skóla og stjórnvalda.
- Draga fram áskoranir og tækifæri í þróun kennaranáms.
Fundurinn er öllum opinn og hvetjum við öll áhugasöm til þátttöku.
Verið hjartanlega velkomin á opnun Menntakviku í Sögu!