Dagskrá opnunarmálstofu Menntakviku 2024

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á opnunarmálstofu Menntakviku sem ber heitið Framtíð menntunar á tímum gervigreindar og fer fram í Hátíðarsal Háskóla Íslands í aðalbyggingu. Fjallað verður um hvernig gervigreind er að umbreyta menntakerfinu og hvaða tækifæri og áskoranir fylgja þessari þróun.

Leiðandi sérfræðingar, kennarar og stefnumótendur munu deila innsýn sinni og reynslu af því að nýta gervigreind við skipulag náms, ekki síst ýmis máltækniforrit sem sífellt verða öflugri. Þá verður einnig spurt hvað sé ábyrg notkun gervigreindar og hvaða mannlegu eiginleika verði að leggja rækt við á tímum örrar tækniþróunar.

Fundarstjóri: Ólafur Páll Jónsson, prófessor við Menntavísindasvið

Dagskrá

13.00 – 13.10 – Opnun
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra – flytur ávarp

13.10 – 13.20 – Tækifæri í menntun með notkun gervigreindar
Helena Sigurðardóttir, kennsluráðgjafi á Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöð hjá Háskólanum á Akureyri.

13.20 – 13.30  Aðstoðarkennarinn
Hjörvar Ingi Haraldsson, framhaldsskólakennari við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.

13.30 – 13.40 – Þegar tæknin talar
Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms, miðstöðvar um máltækni.

13.40 – 13.50 – Samning fjölvalsspurninga með aðstoð gervigreindar
Hafsteinn Einarsson, dósent við Verkfræði- og náttúruvísindasvið, Háskóla Íslands

13.50 – 14.20 – Pallborðsumræður
Helena Sigurðardóttir, Hafsteinn Einarsson, Hjörvar Ingi Haraldsson og Lilja Dögg Jónsdóttir.

Ólafur Páll Jónsson, fundarstjóri, stýrir pallborði.

14.20 – 14.30 – Ávarp rektors
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands flytur ávarp.

14.30 – Léttar kaffiveitingar að málstofu lokinni

Dagskrá Menntakviku hefst svo klukkan 15:00 – hvetjum öll til að kynna sér dagskrána hér

Skapandi leiðir í skóla- og frístundastarfi: Mótum nýja framtíð 

Ég býð ykkur öll hjartanlega velkomin á Menntakviku, stærstu menntaráðstefnu landsins, þar sem kynntar eru nýjustu rannsóknir á sviði menntavísinda og fjallað um brýn viðfangsefni á sviði náms, kennslu, farsældar, velferðar, samfélags og íþrótta og tómstunda.  Ráðstefnan verður nú haldin í Sögu, nýjum glæsilegum húsakynnum Menntavísindasviðs, og markar því mikilvæg tímamót í sögu Háskólans.  

Markmið Menntakviku hefur frá upphafi verið að skapa vettvang fyrir fræða-og fagfólk í skóla- og frístundastarfi til að miðla þekkingu, hugmyndum og starfsháttum sem skila árangri. Á undanförnum árum hafa orðið miklar samfélagslegar breytingar og tækniþróun sem umbreyta um þessar mundir umgjörð náms og kennslu. Segja má að við stöndum á tímamótum og þurfum að spyrja okkur grundvallarspurninga um hvaða hæfni og þekkingu skipti mestu máli að leggja grunn að. Víða um heim er kallað eftir auknum áherslum á verklega og skapandi starfshætti þar sem leitast er við að tengja saman hug og hönd, efla sjálfstæða og skapandi hugsun, hlúa að samskiptahæfni og samkennd, og síðast en ekki síst, gera öllum kleift að njóta sín og vera virkir þátttakendur í samfélaginu.  

Eitt af lykilmarkmiðum flutnings Menntavísindasviðs í Sögu er að stórbæta náms-og kennsluaðstöðu og efla fjölbreytni í námsumhverfi háskólanema. Það er mikill áfangi að taka í notkun þessi glæsilegu kennslurými og má sérstaklega nefna sértæk námsrými fyrir listgreinar, meðal annars leiklistarstofu, myndlistarstofu, textílrými, smíðastofu og tónlistarstofu. Þá verður hreyfirannsóknastofa fyrir íþrótta- og heilsufræði sem er mikið framfaraskref, sérhönnuð rými fyrir kennslu náttúruvísinda og stærðfræði og sérútbúnar leikstofur fyrir kennslu í menntunarfræðum yngri barna. Nú er það okkar að skrifa nýja sögu og móta kennara og fagfólk framtíðarinnar sem kunna að valdefla og mennta ungu kynslóðina, já og okkur öll.  

Opnunarmálstofa Menntakviku fimmtudaginn 2. október setur mikilvægt viðfangsefni í kastljósið, og ber heitið Kennaramenntun í deiglunni. Þar verður tekist á við eftirfarandi spurningar:  

Er sameiginleg sýn á kennaramenntun hér á landi? Hver er uppskriftin að góðum kennara? Hvernig gengur háskólum sem mennta kennara að brúa bil fræða og fags, að undirbúa nýja kennara undir öll þau fjölbreyttu verkefni sem bíða þeirra í starfi?  

Föstudaginn 3. október verða flutt 235 erindi í 57 málstofum og því er úr nægu að velja. Þá verður einnig hægt að fylgjast með málstofum í beinu streymi á ZOOM.  Ég vek sérstaka athygli á því að á laugardeginum 4. október verður boðið upp á um 30 vinnusmiðjur og kynningar kl. 13-15 í Sögu þar sem gefst dýrmætt tækifæri til samvinnu fræða og fagvettvangs. Ráðstefnan er öllum opin og ókeypis. Verið velkomin á Menntakviku 2025! 

Kolbrún Þ. Pálsdóttir 

Forseti Menntavísindasviðs