Um Menntakviku
Menntakvika er árleg ráðstefna Menntavísindasviðs Háskóla Íslands og markmið ráðstefnunnar að kynna og miðla því sem efst er á baugi í menntavísindum og tengdum sviðum hverju sinni.
Allir þeir sem stunda rannsóknir í menntavísindum og á sviðum þeim tengdum geta tekið þátt í Menntakviku. Gerð er sú krafa að efni sem sent er inn sé hluti af markvissri rannsókn eða heilsteyptu þróunarverkefni. Meistaranemar sem hafa lokið eða eru við það að ljúka námi og doktorsnemar eru hvattir til að kynna sínar rannsóknir. Efni sem kynnt er á Menntakviku er fjölbreytt enda eru fræðasviðin sem unnið er með á Menntavísindasviði fjölmörg. Málstofur á Menntakviku
Aðgangur að ráðstefnunni er ókeypis og öll eru velkomin.
Starfsfólk Menntavísindastofnunar á Menntavísindasviði sér um framkvæmd ráðstefnunnar ásamt stjórnsýslu Menntavísindasviðs.
Tengiliður Menntakviku:
Íris Sigurðardóttir – irissigurdardottir@hi.is